Leiðbeiningar

ChatGPT á íslensku

ChatGPT skrifar málfræðilega rétta íslensku en hún hljómar oft eins og þýðing úr ensku. Hér er skýringin á því, algengustu einkennin og hvernig þú lagar textann.

Lagaðu ChatGPT-textann hér

Límdu inn texta frá ChatGPT eða annarri gervigreind. Altalandi lagar orðalagið, sýnir hverja breytingu og lætur góðan texta í friði.

0 / 2.000

Ókeypis og án skráningar. Textar úr ókeypis notkun eru geymdir án persónuupplýsinga og notaðir til að bæta þjónustuna.

Af hverju hljómar íslenskan eins og þýðing?

Mállíkön á borð við ChatGPT læra mestmegnis af enskum texta. Þegar þau skrifa á íslensku raða þau íslenskum orðum í enska setningagerð og nota ensk orðasambönd. Orðin eru vissulega íslensk en hugsunin að baki þeim er ensk. Þetta er kallað þýðingarbragur.

Lesandinn finnur þetta á sér þótt hann geti kannski ekki bent á neina eina villu. Textinn er réttur en hljómar einfaldlega ekki eins og lifandi manneskja hafi samið hann, og það dregur úr trausti.

Algengustu einkennin

  • Beinar þýðingar á enskum orðatiltækjum, eins og „ná út til“ (e. reach out) og „taka á næsta stig“.
  • Markaðsmál sem enginn Íslendingur myndi nota, til dæmis „knúið af ástríðu“.
  • Óþarflega þungt orðalag, eins og „gerir þér kleift að“ í stað einfaldrar sagnar.
  • Of mörg loforð í sama textanum.

Dæmi: fyrir og eftir

Setningar sem einkenna gervigreindartexta og hvernig Altalandi skrifaði þær upp á nýtt.

FyrirEftir
Vertu viss um að ná út til okkar ef þú hefur einhverjar spurningar.Endilega hafðu samband ef einhverjar spurningar vakna.
Við erum spennt að taka fyrirtækið þitt á næsta stig.Við hlökkum til að hjálpa þér að efla reksturinn.
Lausnin okkar gerir þér kleift að spara tíma og peninga.Með lausninni okkar spararðu bæði tíma og fé.
Smelltu hér til að læra meira um tilboðin okkar.Smelltu hér til að kynna þér tilboðin okkar nánar.

Hvernig færðu betri íslensku úr ChatGPT?

  • Biddu ChatGPT um að skrifa beint á íslensku en ekki að þýða enskan texta.
  • Láttu fylgja dæmi um texta sem þú vilt að svarið líkist.
  • Biddu um styttri setningar og færri lýsingarorð.
  • Lestu textann upphátt. Ef þú myndir aldrei segja setninguna við aðra manneskju er hún líklega þýðing.
  • Eða láttu Altalandi lesa textann yfir. Þá sérðu hverja breytingu og af hverju hún var gerð.

Spurt og svarað

Getur ChatGPT skrifað góða íslensku?
Oft já, sérstaklega í stuttum og einföldum texta. Í markaðsefni og lengri texta er þýðingarbragurinn algengastur.
Virkar gervigreind á íslensku?
Já, stærstu líkönin skrifa málfræðilega rétta íslensku. Vandinn er að hún hljómar oft eins og þýðing: enskar setningar með íslenskum orðum. Altalandi lagar það og lætur texta sem er þegar á góðri íslensku í friði.
Breytir Altalandi merkingu textans?
Ekki án þess að þú sjáir það. Hver breyting er sýnd og merkingin er borin saman við frumtextann. Ef samanburðurinn finnur merkingarmun færðu frumtextann aftur.
Er hægt að nota Altalandi inni í ChatGPT?
Já. Þú býrð til tengil á Mínum síðum og bætir Altalandi við ChatGPT. Eftir það biður þú um texta á góðri íslensku beint í spjallinu.

Láttu Altalandi lesa yfir

Límdu ChatGPT-textann inn á forsíðunni, án skráningar. Altalandi endurskrifar hann á eðlilega íslensku, sýnir hverja breytingu með rökum og ber merkinguna saman við frumtextann.

Lagaðu textann ókeypis