Persónuvernd
Hvaða gögn við vinnum með
Síðast uppfært 9. október 2026.
Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili vinnslunnar er söluaðili þjónustunnar. Fyrirspurnir og beiðnir um gögn, leiðréttingu eða eyðingu sendir þú á netfangið hér að neðan.
- Söluaðili
- DB consulting ehf.
- Kennitala
- 600722-1070
- Heimilisfang
- Mánatúni 6, 105 Reykjavík
- Netfang
- hallo@altalandi.is
- VSK-númer
- 145531
Textinn þinn og textabankinn
Textinn sem þú sendir fer til þeirra mállíkanaveitna sem vinna verkið (t.d. í gegnum OpenRouter) og er unninn samkvæmt skilmálum þeirra.
Texti úr ókeypis notkun er geymdur. Textar sem þú sendir án endurgjalds, á forsíðunni án innskráningar eða innan ókeypis dagskammts aðgangsins, eru geymdir í textabanka ásamt niðurstöðunum. Við notum bankann til að bæta þjónustuna: til að fara yfir og leiðrétta þýðingar, prófa nýjar útgáfur og þjálfa og stilla líkönin sem Altalandi notar.
Persónuupplýsingar eru fjarlægðar. Áður en texti fer í bankann skiptum við kennitölum, netföngum, símanúmerum, kortanúmerum, reikningsnúmerum og API-lyklum út fyrir merki á borð við [kennitala]. Nöfn og annað sem ekki er hægt að finna með vissu geta setið eftir, svo sendu ekki viðkvæmar persónuupplýsingar í ókeypis notkun.
Þú getur afþakkað. Veldu „Ekki geyma“ undir textareitnum á forsíðunni (vafrinn man valið) eða „Ekki geyma texta úr ókeypis notkun“ undir Stillingum; sú stilling gildir um allan aðganginn, líka API-ið og skipanalínuna. Í einstöku API-kalli sendir þú "contribute": false.
Texti úr greiddri notkun er ekki geymdur. Textar sem greitt er fyrir af inneign eru ekki geymdir nema þú leyfir það sérstaklega, á Mínum síðum eða með "contribute": true.
Lagagrundvöllur og varðveisla. Geymsla texta úr ókeypis notkun byggir á lögmætum hagsmunum Altalandi af því að bæta þjónustuna (f-liður 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar, sbr. lög nr. 90/2018), og þú getur andmælt henni hvenær sem er eins og lýst er að ofan. Geymsla sem þú leyfir sérstaklega byggir á samþykki þínu. Textum er eytt úr bankanum eftir þrjú ár. Þú getur beðið um að tilteknum texta verði eytt fyrr með því að senda okkur auðkenni beiðninnar (byrjar á r_). Geymsla texta úr ókeypis notkun nær til texta sem sendir eru frá og með 7. október 2026; eldri textar voru ekki geymdir nema með samþykki.
Texti sem þú sendir í gegnum ChatGPT-tenginguna er ekki geymdur í textabankanum, jafnvel þótt þú hafir leyft textageymslu annars staðar í aðganginum. Við skráum notkun og varðveitum aðgerðaauðkenni og fingrafar inntaksins til að koma í veg fyrir tvöfalda vinnslu og gjaldfærslu. Fingrafarið er reiknað með leynilykli; hvorki inntakið né niðurstaðan er geymd til að endursenda við endurtekna beiðni. Mállíkanaveitur vinna samt með textann eins og lýst er að ofan.
Aðgangur
- Notandanafn og aðgangsorð: aðgangsorð eru eingöngu geymd sem tætigildi (PBKDF2), aldrei sem hreinn texti.
- Innskráning með Google: ef þú velur þann kost fáum við auðkenni Google-aðgangsins þíns og netfang. Við biðjum ekki um neitt annað frá Google og notum netfangið ekki í markaðsskyni.
- API-lyklar: aðeins tætigildi leynihlutans er geymt. Lykillinn sem
altalandi loginsækir er vistaður á tölvunni þinni, en ekki í læsilegu formi hjá okkur. - Aðgangslyklar (passkeys): við geymum aðeins opinbera hluta lykilsins, nafnið sem hann fær, hvort hann er samstilltur milli tækja og hvenær honum var bætt við og hann síðast notaður. Einkalykillinn verður eftir á tækinu þínu og fer aldrei til okkar. Aðgangslyklum eyðir þú undir Stillingum.
- Tengd forrit (t.d. ChatGPT): þegar þú tengir forrit við aðganginn skráum við tenginguna: hvaða forrit, hvaða API-lykil þú valdir, heimildirnar sem þú samþykktir (að laga texta, að sjá stöðu lagfæringa), hvort tengingin megi nota inneign og hvenær hún var gerð. Aðgangs- og endurnýjunarlyklar tengingarinnar eru eingöngu geymdir sem tætigildi. Á meðan þú skráir þig inn og samþykkir geymum við tengibeiðni forritsins, bundna vafranum þínum með leynilykli sem við geymum aðeins sem tætigildi; beiðnin gildir í 15 mínútur og útrunnum beiðnum er eytt reglulega. Þú getur aftengt forrit hvenær sem er undir Tengingum og þá hættir tenging þess að virka strax. Aftenging eyðir ekki notkunar- og bókhaldsfærslum sem þegar hafa orðið til, né skránni um að tengingin hafi verið til.
Notkun og öryggi
Fyrir hvert kall skráum við tímasetningu, lykil, aðgang, IP-tölu, lengd texta, hvaða mállíkön voru notuð, fjölda tóka, áætlaðan kostnað og hvernig kallinu lauk. Þær upplýsingar þarf til að reikna notkun, gera upp inneign og greina misnotkun. Nýskráningar, innskráningar (einnig misheppnaðar) og stofnun og afturköllun lykla eru skráðar með IP-tölu. IP-tölum er eytt eftir 90 daga; annað er geymt vegna kostnaðar- og bókhaldssögu.
Greiðslur
Greiðslur fara fram á greiðslusíðu Kling (kling.is). Altalandi sér aldrei kortanúmer. Við geymum aðeins auðkennin sem Kling úthlutar viðskiptavininum og greiðslumátanum, og merkingu kortsins (t.d. „Visa •••• 4242“), svo þú sjáir hvaða kort er vistað. Inneignarfærslur eru skráðar svo þú getir séð hvert inneignin fór.
Vafrakökur
Við notum eingöngu nauðsynlegar vefkökur: innskráningarköku fyrir þróunarvefinn og skammlífa köku sem ver innskráningu með Google. Engar auglýsinga- eða rakningarkökur eru notaðar.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að sjá gögnin sem tengjast aðganginum þínum, fá þau leiðrétt eða láta eyða aðganginum. Lyklum getur þú eytt undir API-lyklum. Sendu beiðni á hallo@altalandi.is. Þú getur líka leitað til Persónuverndar (personuvernd.is).