„altalandi“
Fyrir forritaraVerð
Skrá inn
Fyrir forritaraVerðSvona virkar AltalandiSkilmálarPersónuvernd
Útlit

Skilmálar Altalandi

Síðast uppfært 7. október 2026.

Söluaðili

Seljandi þjónustunnar er sá sem tilgreindur er hér að neðan. Hann ber ábyrgð á þjónustunni, sölu inneignar og meðferð persónuupplýsinga.

Söluaðili
DB consulting ehf.
Kennitala
600722-1070
Heimilisfang
Mánatúni 6, 105 Reykjavík
Netfang
hallo@altalandi.is
VSK-númer
145531

Þjónustan

Altalandi endurskrifar enskan eða stirðan íslenskan texta á eðlilega íslensku og ber merkinguna sjálfvirkt saman við frumtextann. Niðurstaðan er unnin með mállíkönum og í henni geta verið villur. Þú berð ábyrgð á að yfirfara texta áður en hann er birtur, sérstaklega lagalegan, fjárhagslegan eða læknisfræðilegan texta. Breytingar eru sýndar og merking er athuguð, en það kemur ekki í stað yfirlestrar.

Fyrir hvað er greitt

Gjaldið fyrir notkun nær til tveggja hluta:

  • Þjónustu Altalandi sjálfrar: vinnsluferlisins sem Altalandi hefur þróað og rekur (hvernig textinn er sendur til vinnslu, samanburður á merkingu, málmat, breytingalistar og varnir gegn röngum breytingum), vefverkfærisins, API-sins, skipanalínunnar og tenginga við önnur forrit, ásamt hýsingu, rekstri og þjónustu við notendur.
  • Kostnaðar við utanaðkomandi mállíkanaveitur sem textinn er sendur til við vinnsluna, beint eða í gegnum milliliði á borð við OpenRouter. Þær veitur eru ekki á vegum Altalandi og um vinnslu þeirra gilda þeirra eigin skilmálar.

Ekki er greitt fyrir opinn hugbúnað eða opin gögn. Altalandi notar endurgjaldslaust opinn hugbúnað og opin gögn frá þriðju aðilum samkvæmt leyfum þeirra (sjá næsta kafla). Þau eru hvorki seld né leigð og gjaldið er ekki fyrir þau. Hver sem er getur notað þau sjálfur samkvæmt sömu leyfum.

Opinn hugbúnaður og gögn

Altalandi byggir meðal annars á eftirfarandi opnum hugbúnaði og gögnum. Rétthafar þeirra eru ekki aðilar að þjónustunni, bera enga ábyrgð á henni og hafa hvorki samþykkt hana né mælt með henni. Nöfnin eru notuð til að geta uppruna, ekki sem vörumerki Altalandi.

  • GreynirCorrect, Greynir (reynir), Tokenizer, Icegrams og islenska frá Miðeind ehf. Leyfi: MIT. Copyright © Miðeind ehf.
  • Beygingarlýsing íslensks nútímamáls (BÍN). Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Höfundur og ritstjóri Kristín Bjarnadóttir. Leyfi: CC BY-SA 4.0. Gögnunum er flett upp óbreyttum til að athuga orðmyndir.
  • IceBERT frá Miðeind ehf. Leyfi: CC BY 4.0. Líkanið er notað óbreytt til að meta texta.

Fagorðasöfn og málfarsábendingar: Íðorðabankinn og Málfarsbankinn, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Rétthafar orðasafnanna eru orðanefndirnar sem gera þau.

Fyrirspurnir um leyfi og rétthafa má senda á hallo@altalandi.is.

Textar og textabanki

Þú heldur öllum réttindum að textanum sem þú sendir og að niðurstöðunni. Þegar þú notar þjónustuna án endurgjalds, á forsíðunni eða innan ókeypis dagskammts, veitir þú Altalandi ótímabundið, endurgjaldslaust leyfi til að geyma textann og niðurstöðuna, að persónuupplýsingum fjarlægðum, og nota þau til að bæta þjónustuna, þar á meðal til að þjálfa og prófa líkön. Leyfið gildir ekki um texta sem þú afþakkar að séu geymdir, né um texta sem greitt er fyrir af inneign nema þú leyfir það sérstaklega. Nánar í persónuverndarstefnunni.

Sendu ekki texta sem þú hefur ekki rétt til að láta vinna. Sendu heldur ekki viðkvæmar persónuupplýsingar í ókeypis notkun.

Aðgangur og lyklar

Þú berð ábyrgð á aðgangi þínum og API-lyklum. Deildu þeim ekki með öðrum og afturkallaðu lykil á Mínum síðum ef grunur leikur á að hann hafi lekið. Óheimilt er að nota þjónustuna til að brjóta lög, senda ruslpóst eða reyna að komast fram hjá notkunarmörkum; slíkum aðgangi má loka.

Inneign og verð

  • Hver aðgangur fær ókeypis dagskammt og nýjum aðgangi fylgir prufuinneign einu sinni. Umfram það er greitt fyrir hvert kall af fyrirframgreiddri inneign.
  • Verð eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti. Verð hvers kalls ræðst af gildandi verðskrá þegar kallið er keyrt og verðbreytingar hafa ekki áhrif á virði inneignar sem þú átt. Inneignin fyrnist ekki.
  • Greitt er með greiðslukorti á greiðslusíðu Kling (kling.is) og inneignin færist inn á aðganginn um leið og greiðslan er staðfest. Kortanúmer berast aldrei til okkar.
  • Þegar þú kaupir inneign og notar hana óskar þú eftir því að þjónustan sé veitt strax.
  • Sjálfvirk áfylling er valfrjáls. Þú velur upphæð, viðmið og mánaðarhámark.

Uppsögn

  • Aðganginum fylgir hvorki áskrift né binding, og þú getur hætt að nota þjónustuna hvenær sem er.
  • Sjálfvirkri áfyllingu getur þú sagt upp hvenær sem er á Mínum síðum. Hún stöðvast strax. Engin frekari gjöld eru tekin.
  • Áskrift fyrir fyrirtæki endurnýjast sjálfkrafa í hverjum mánuði þar til henni er sagt upp á Mínum síðum. Eftir uppsögn gildir áskriftin út tímabilið sem þegar hefur verið greitt fyrir, og inneign sem áskriftin hefur fært inn fyrnist ekki.
  • Þú getur óskað eftir því að aðganginum verði lokað með því að senda okkur tölvupóst á hallo@altalandi.is. Við lokum honum innan fimm virkra daga og eyðum persónuupplýsingum í samræmi við persónuverndarstefnuna, nema að því marki sem lög skylda okkur til að varðveita bókhaldsgögn.
  • Brjóti notandi gegn skilmálunum getum við lokað aðgangi hans. Ónotuð keypt inneign er þá endurgreidd.

Endurgreiðsla og réttur til að falla frá kaupum

  • Samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga getur neytandi fallið frá kaupum á inneign innan 14 daga frá kaupdegi án þess að tilgreina ástæðu. Tilkynningu þar um skal senda á hallo@altalandi.is.
  • Við endurgreiðum þann hluta keyptrar inneignar sem er ónotaður. Sá hluti sem þegar er notaður telst þjónusta sem veitt var að þinni beiðni og fæst ekki endurgreiddur.
  • Auk lögbundins réttar til að falla frá kaupum endurgreiðum við ónotaða keypta inneign hvenær sem er, lokir þú aðganginum.
  • Prufuinneign, magnauki og inneign úr kóðum eru ekki endurgreidd. Magnauki fellur niður þegar áfyllingin sem honum fylgdi er endurgreidd.
  • Endurgreitt er á sama greiðslukort og greitt var með, eigi síðar en 14 dögum eftir að beiðni berst.
  • Hafi verið rukkað ranglega leiðréttum við það og endurgreiðum að fullu.

Aðgengi og breytingar

Við leitumst við að halda þjónustunni gangandi en ábyrgjumst ekki að hún sé alltaf aðgengileg eða villulaus. Skilmálum og þjónustunni má breyta, en verulegar breytingar verða kynntar hér og á Mínum síðum. Um persónuupplýsingar gildir persónuverndarstefnan.

Lög og ágreiningur

Um skilmálana gilda íslensk lög. Náist ekki samkomulag getur neytandi leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Ágreiningsmál má reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Hafa samband

Spurningar um skilmálana, uppsögn eða endurgreiðslu? Sendu tölvupóst á hallo@altalandi.is.

„altalandi“

Að vera altalandi á tungumáli er að tala það reiprennandi.

Varan

  • Verkfærið
  • Svona virkar Altalandi
  • Verð

Leiðbeiningar

  • ChatGPT á íslensku
  • Þýðingarbragur
  • Prófarkalestur
  • English to Icelandic

Forritarar

  • Uppsetning
  • Skjölun og lyklar
  • Altalandi í ChatGPT og Claude
  • agents.md · llms.txt

Traust

  • Persónuvernd
  • Skilmálar

© 2026 Altalandi

DB consulting ehf. · kt. 600722-1070 · Mánatúni 6, 105 Reykjavík · hallo@altalandi.is · VSK-nr. 145531

Útlit