Samanburður

Málfríður eða Altalandi?

Málfríður frá Miðeind og Altalandi lesa bæði yfir íslenskan texta, en þau eru smíðuð fyrir ólík verk. Hér eru mælingar okkar á báðum, líka þar sem Málfríður stendur sig betur.

Ólík verkfæri

Málfríður er villuleiðréttir: líkan sem Miðeind þjálfaði á íslenskum villum og leiðréttir stafsetningu, beygingar og greinarmerki. Hún beitir leiðréttingunum strax.

Altalandi gerir tvennt. Yfirlesturinn lagar villur og býður leiðréttingar sem skipta orði út fyrir annað sem tillögur. „Bæta textann“ skrifar texta sem hljómar eins og þýðing eða gervigreind upp á eðlilega íslensku og þýðir úr ensku. Merkingin er alltaf borin saman við frumtextann og hver breyting er sýnd.

Það sem mælingarnar sýna

Mælingar okkar frá október 2026, sömu textar og sami mælikvarði fyrir bæði.

Villur: 346 raunverulegar villur í 300 setningum. Réttar setningar: 100.
MælingMálfríðurAltalandi
Villur lagaðar69%41%
Réttum setningum breytt165
Rangar leiðréttingar2413
ÞýðingarbragurÓbreytturLagaður

Villurnar eru úr prófhluta Íslensku villumálheildarinnar (ritgerðir nemenda, fréttir og Wikipedia). Málfríður finnur greinilega fleiri villur, einkum í hástöfum, orðaskilum og stafsetningu. Í samræmi, falli og beygingu munar litlu. Altalandi breytir sjaldnar því sem var rétt.

Hvort á ég að nota?

  • Málfríði ef þú skrifaðir textann sjálf eða sjálfur og vilt að sem flestar stafsetningarvillur finnist.
  • Altalandi ef textinn kemur úr ChatGPT eða er þýddur úr ensku og hljómar ekki eðlilega, ef góður texti á að standa óbreyttur, ef þú vilt sjá skýringu á hverri breytingu, eða ef þú þarft íslensku inni í ChatGPT, Claude eða eigin forriti.

Sjá líka yfirlestur, þýðingarbrag og prófarkalestur.

Spurt og svarað

Hvort finnur fleiri villur?
Málfríður. Á 300 setningum með raunverulegum villum lagaði Málfríður 69% villnanna en Altalandi bauð leiðréttingu á 41%. Munurinn liggur mest í hástöfum, orðaskilum og stafsetningu.
Hvort breytir góðum texta síður?
Altalandi. Af 100 réttum setningum breytti Málfríður 16 en Altalandi 5, og Altalandi beitir engri leiðréttingu sem skiptir orði út fyrir annað nema þú samþykkir hana.
Lagar Málfríður texta sem hljómar eins og þýðing?
Nei, Málfríður er villuleiðréttir. Í prófunum okkar lét hún málfræðilega réttan texta með þýðingarbrag óbreyttan. Altalandi skrifar slíkan texta upp á eðlilega íslensku þegar þú velur „Bæta textann“.
Má nota bæði?
Já. Margir láta villuleiðrétti fara yfir eigin texta og nota Altalandi á texta úr ChatGPT eða þýðingar.

Prófaðu Altalandi á þínum texta

Án skráningar, allt að 2.000 stafir í einu. Hver breyting er sýnd með skýringu.

Lesa yfir ókeypis
Málfríður eða Altalandi? Samanburður á yfirlestri – Altalandi