Safn
Hnappasafnið
Enskir hnappar, valmyndir og merkingar og íslenskan sem íslenskir vefir og forrit nota í raun. Leitaðu hér, eða láttu gervigreindina fletta upp heilum lista í einu.
Leitaðu í safninu
Prófaðu: · · · ·
Ein lína og gervigreindin sér um afganginn
Settu Altalandi upp í Claude Code, Codex eða Cursor með einni línu. Eftir það flettir gervigreindin hnöppunum upp í safninu sjálf og þýðir það sem vantar. Þú þarft ekki að gera neitt annað.
claude mcp add altalandi -s user -- npx -y altalandi-mcp@latest
ChatGPT, Claude Desktop og fleiri leiðir: uppsetning fyrir forritara.
1 kr á hnapp
- Þú greiðir aðeins fyrir hnappa sem finnast. Það sem finnst ekki kostar ekkert.
- Ókeypis dagskammturinn þinn gildir fyrst, svo inneignin.
- Svarið kemur strax, því engin gervigreind þarf að skrifa það.
Úr eigin kóða
Allt að 200 textar í einu. Það sem finnst ekki geturðu sent áfram í þýðingu.
curl https://altalandi.is/api/v1/hnappasafn \
-H "Authorization: Bearer $ALTALANDI_KEY" \
-H "content-type: application/json" \
-d '{"strings": ["Search", "Contact us", "Save changes"]}'Í MCP heitir verkfærið lookup_icelandic_ui_strings. Lykla og tengingu finnurðu á Mínum síðum.
Hvaðan kemur safnið?
Úr opinberum síðum íslenskra vefja sem eru bæði á íslensku og ensku, og úr íslenskum þýðingum opins hugbúnaðar. Aðeins það sem heimildirnar eru sammála um er í boði, og hverju svari fylgir hvaðan það kemur.
Spurt og svarað
- Hvað er hnappur?
- Stuttur texti í viðmóti: hnappur, valmynd, fyrirsögn eða merking á reit, til dæmis „Leita“, „Vista“ eða „Hafa samband“.
- Af hverju ekki bara þýða?
- Þýðing gefur rétta íslensku, en safnið gefur það sem Íslendingar eru vanir að sjá á vefjum og í forritum. Sami hnappur heitir þá það sama alls staðar í verkinu þínu, og svarið kemur strax.
- Hvað kostar það?
- 1 kr á hnapp sem finnst. Það sem finnst ekki kostar ekkert, og ókeypis dagskammturinn þinn gildir fyrst. Hér á síðunni er leitin ókeypis.
- Get ég sótt allt safnið?
- Nei. Safnið er notað í gegnum Altalandi: þú flettir upp textunum sem verkið þitt þarf, allt að 200 í einu og 2.000 á dag. Leitin hér á síðunni er sýnishorn.
Allur listinn í einu
Tengdu Altalandi við Claude Code, Cursor, Codex eða ChatGPT og biddu um íslenska hnappa. Gervigreindin flettir þeim upp í safninu og þýðir það sem vantar.
Tengja Altalandi