Yfirlestur

Yfirlestur á íslenskum texta

Límdu inn texta og Altalandi les hann yfir. Augljósar villur eru lagaðar strax, og aðrar leiðréttingar, svo sem á stafsetningu, falli og samræmi, færðu sem tillögur sem þú ræður hvort þú notar.

Lestu textann yfir hér

0 / 2.000 stafir

Ókeypis og án skráningar. Textar úr ókeypis notkun eru geymdir án persónuupplýsinga og notaðir til að bæta þjónustuna.

Hvað lagar yfirlesturinn?

  • Stafsetningu, til dæmis „þu“ sem verður „þú“.
  • Greinarmerki og orðabil.
  • Fallbeygingu og samræmi, til dæmis „mér langar“ sem verður „mig langar“.
  • Hverri breytingu fylgir skýring og orðalagið þitt heldur sér. Þar sem Altalandi sér líklega villu en getur ekki ráðið hvað á að standa er staðurinn merktur og engu breytt.

Yfirlestur eða endurskrift?

Yfirlestur lagar villur. Sé textinn réttur en hljómi samt eins og þýðing úr ensku, eða eins og ChatGPT hafi skrifað hann, þarf meira en yfirlestur: þá velurðu „Bæta textann“ og Altalandi skrifar textann upp á eðlilega íslensku. Lestu meira um þýðingarbrag og íslensku úr ChatGPT.

Fyrir bækur og texta sem fer á prent er prófarkalesari besti kosturinn. Á síðunni um prófarkalestur sérðu verð og hvenær hvort hentar.

Spurt og svarað

Er yfirlesturinn ókeypis?
Já. Hér og á forsíðunni geturðu lesið yfir allt að 2.000 stafi í einu án skráningar. Með ókeypis aðgangi færðu 6.500 stafir á dag (um 1 grein).
Breytir yfirlesturinn orðalaginu mínu?
Nei. Aðeins villur eru lagaðar. Leiðréttingar sem skipta einu orði út fyrir annað, til dæmis á falli, færðu sem tillögur sem þú notar eða hunsar. Viljirðu eðlilegra orðalag velurðu „Bæta textann“ á forsíðunni.
Finnur Altalandi allar villur?
Nei, ekkert forrit gerir það. Altalandi breytir frekar of litlu en of miklu og sýnir þá staði þar sem það sá líklega villu en gat ekki ráðið hvað átti að standa. Lestu mikilvægan texta yfir sjálf eða sjálfur.
Get ég látið lesa yfir ritgerð?
Já, kafla fyrir kafla. Án skráningar eru 2.000 stafir í einu, en með aðgangi geturðu sent lengri texta og Word- eða PDF-skjöl. Kynntu þér reglur skólans um hjálpartæki áður en þú skilar.

Lengri texti eða skjal?

Á forsíðunni geturðu sett inn Word- og PDF-skjöl. Altalandi les líka yfir í ChatGPT, í Claude og gegnum API.

Opna yfirlesturinn
Yfirlestur á íslenskum texta, ókeypis og á nokkrum sekúndum – Altalandi