Atvinnuumsókn

Kynningarbréf: dæmi og hvernig þú skrifar gott bréf

Kynningarbréfið er fyrsta kynning þín á vinnustaðnum. Hér sérðu hvað á að standa í því, dæmi um bréf og hvernig þú lagar bréf sem hljómar eins og þýðing.

Hvað á að standa í kynningarbréfi?

  1. Hvaða starf þú sækir um og hvar þú sást það auglýst.
  2. Hvað þú kemur með: tvö eða þrjú dæmi úr reynslu þinni sem tengjast starfinu, helst með tölum.
  3. Af hverju þessi vinnustaður: eitthvað sem sýnir að þú þekkir hann.
  4. Lokaorð: að þú hlakkir til að heyra frá þeim og hvenær þú getur komið í viðtal.

Dæmi um kynningarbréf

Góðan dag,

Ég sæki hér með um starf markaðsfulltrúa sem auglýst var á vef ykkar 3. október.

Undanfarin fjögur ár hef ég séð um samfélagsmiðla og fréttabréf lítillar kaffihúsakeðju. Á þeim tíma fjölgaði áskrifendum fréttabréfsins úr 2.000 í 9.000 og ég lærði að skrifa texta sem fólk les til enda.

Mig langar að starfa hjá ykkur vegna þess að þið leggið áherslu á vandað efni frekar en mikið magn, og það er einmitt sú vinna sem ég nýt mest.

Ég hlakka til að heyra frá ykkur og get komið í viðtal hvenær sem hentar.

Með kveðju,
Anna Jónsdóttir

Bréf úr ChatGPT? Lagaðu það hér

Bréf sem gervigreind skrifar eru oft full af enskum orðasamböndum: „ástríða fyrir“, „ná út til“ og „fullkominn kandídat“. Límdu bréfið inn og Altalandi skrifar það á eðlilega íslensku. Lestu það svo yfir og settu þín eigin dæmi inn.

0 / 2.000 stafir

Ókeypis og án skráningar. Textar úr ókeypis notkun eru geymdir án persónuupplýsinga og notaðir til að bæta þjónustuna.

Algeng mistök

  • Að endurtaka ferilskrána í stað þess að segja af hverju reynslan skiptir máli.
  • Sama bréfið til allra vinnustaða.
  • Stór orð án dæma, eins og „metnaðarfull“ og „lausnamiðuð“, sem allir nota.
  • Enskuskotið orðalag. Lestu bréfið upphátt: ef þú myndir ekki segja setninguna, breyttu henni.

Sjá líka ferilskrá á íslensku.

Spurt og svarað

Hversu langt á kynningarbréf að vera?
Ein síða í mesta lagi, oftast þrjár til fimm stuttar málsgreinar. Sá sem ræður les mörg bréf og þakkar fyrir stutt bréf.
Má nota ChatGPT til að skrifa kynningarbréf?
Já, sem uppkast. En bréf úr ChatGPT hljóma oft eins og þýðing úr ensku og eins og öll hin bréfin. Settu inn þín eigin dæmi og láttu Altalandi laga orðalagið.
Hvað er munurinn á kynningarbréfi og ferilskrá?
Ferilskráin telur upp hvað þú hefur gert. Kynningarbréfið segir af hverju það skiptir máli fyrir þetta starf og þennan vinnustað.

Lagaðu bréfið þitt

Límdu bréfið inn á forsíðunni, án skráningar. Altalandi lagar orðalagið og sýnir hverja breytingu.

Opna Altalandi
Kynningarbréf: dæmi og hvernig þú skrifar gott bréf – Altalandi