Atvinnuumsókn

Ferilskrá á íslensku

Góð ferilskrá er stutt, skýr og á eðlilegri íslensku. Hér er uppsetningin, orðalag sem virkar og hvernig þú breytir enskri ferilskrá í íslenska.

Uppsetning

  1. Nafn og samskiptaupplýsingar: sími, netfang og hvar þú býrð.
  2. Stutt kynning: tvær eða þrjár línur um hver þú ert og hvað þú vilt gera.
  3. Starfsreynsla: nýjasta starfið fyrst, með tímabili, vinnustað og helstu verkefnum.
  4. Menntun og námskeið sem skipta máli.
  5. Færni og tungumál.
  6. Meðmælendur, eða „veittir ef óskað er“.

Ensk ferilskrá yfir á íslensku

Límdu inn texta úr enskri ferilskrá. Þú færð hann á eðlilegri íslensku, og merkingin er borin saman við frumtextann.

0 / 2.000 stafir

Ókeypis og án skráningar. Textar úr ókeypis notkun eru geymdir án persónuupplýsinga og notaðir til að bæta þjónustuna.

Orðalag sem virkar

Bein þýðing úr ensku hljómar stirt í ferilskrá. Svona skrifa Íslendingar sömu atriðin.

Bein þýðingEðlileg íslenska
Sterk samskiptahæfni og liðsmaður.Á auðvelt með samskipti og vinn vel í hópi.
Ábyrgur fyrir að stjórna samfélagsmiðlum.Sá um samfélagsmiðla fyrirtækisins.
Ástríðufullur um þjónustu við viðskiptavini.Hef gaman af því að þjónusta fólk.

Sjá líka kynningarbréf: dæmi og ráð.

Spurt og svarað

Hversu löng á ferilskrá að vera?
Ein til tvær síður. Nýjasta starfið fyrst, og eldri störf styttri.
Á ég að hafa mynd?
Það tíðkast víða á Íslandi en er ekki skylda. Ef þú setur mynd skaltu velja einfalda og skýra mynd.
Get ég þýtt enska ferilskrá?
Já. Límdu hana inn og Altalandi skrifar hana á eðlilega íslensku og ber merkinguna saman við frumtextann. Lestu hana svo yfir: starfsheiti og nöfn skóla þarf stundum að laga að íslenskri venju.

Lengri ferilskrá eða skjal?

Á forsíðunni geturðu sett inn Word- eða PDF-skjal. Altalandi sýnir hverja breytingu.

Opna Altalandi
Ferilskrá á íslensku: uppsetning, orðalag og þýðing úr ensku – Altalandi