Söfn
Orðakistan
Íslensk heiti og orðalag sem Altalandi flettir upp í stað þess að giska. Leitaðu hér, eða láttu gervigreindina fletta upp heilum lista í einu.
Leitaðu í kistunni
Prófaðu: · · · ·
Hvað er í kistunni?
- Hnappasafnið6.000 hnappar og valmyndirSave changes → Vista breytingar
- Staðir á Íslandi232 staðir með beygingum og á/íÍsafjörður → á Ísafirði, til Ísafjarðar
- Lönd og svæði290 heitiGermany → Þýskaland
- Tungumál560 heitiFinnish → finnska
- Gjaldmiðlar og mælieiningar460 heitiKilometers → kílómetrar (km)
- Borgir heimsins350 heitiCopenhagen → Kaupmannahöfn
- Mánuðir og vikudagarmeð skammstöfunumFeb → feb.
- Þýðingarbragur24 stirð orðasamböndná út til → hafa samband
Þýðingarbragur
Orðalag sem kemur upp um þýðingu. Altalandi lagar það sjálft; hér er listinn ef þú skrifar sjálf eða sjálfur.
Sýna listann (24)
- ná út tilhafa sambandBein þýðing á „reach out“. Á íslensku höfum við samband.
- taka á næsta stigefla, bæta, ná lengraEnsk líking. Segðu frekar hvað batnar.
- vertu viss um aðmundu að, gættu þess aðBein þýðing á „make sure“.
- gera viss umtryggja, ganga úr skugga um„Gera viss“ er ekki íslenska.
- ekki hika við aðendilegaEnskt kurteisisorðalag. „Endilega“ segir það sama, hlýlegar.
- Vinsamlegast …sleppa þvíOft óþarft fremst í stuttum fyrirmælum. „Please“ þarf ekki alltaf að þýða.
- í lok dagsinsþegar öllu er á botninn hvolft, þegar upp er staðiðEnsk líking, ekki um daginn sjálfan.
- hvert skref á leiðinnialla leið, frá upphafi til endaBein þýðing á ensku orðasambandi.
- læra meirakynna sér nánar, lesa meiraÁ hnappi og í tengli segjum við „Lesa meira“ eða „Kynna sér málið“.
- gerir þér kleift aðmeð … geturðu, þú geturÞungt orðalag fyrir einfalda sögn.
- taka staðfara fram, eiga sér stað„Take place“ heitir „fara fram“ á íslensku.
- í röð tiltil að, til þess aðOrðrétt þýðing á „in order to“.
- knúið afbyggt á, notarBein þýðing á „powered by“. Segðu frekar hvað varan gerir.
- eru velkomin að taka þáttAllir eru velkomnir, Öllum er velkomið að taka þáttBein þýðing á „welcome to“.
- komdu og upplifðuKomdu á …, Vertu með okkur á …Markaðsmál úr ensku.
- kvöldið býður upp áÁ kvöldinu verður …, Þar verður …Bein þýðing. Segðu frekar hvað verður á dagskrá.
- óhikað aðendilega, þér er velkomið aðBein þýðing á „feel free to“.
- við erum spennt aðvið hlökkum til að, það gleður okkur aðEnsk tilfinningaorðræða úr markaðstexta.
- ástríðufullur umhefur brennandi áhuga áBein þýðing á „passionate about“.
- ábyrgur fyrir aðsá um, hafði umsjón meðÍ ferilskrá segjum við hvað við gerðum.
- fullkominn kandídatég tel mig henta vel í starfið„Kandídat“ og „fullkominn“ saman er ensk ferilskrárklisja.
- sterk samskiptahæfniá auðvelt með samskiptiEnsk upptalning; á íslensku lýsum við því sem við gerum.
- Eigðu góðan dagHafðu það gott, Góða helgiÍ lagi í spjalli, en hljómar þýtt í formlegum texta.
- staðreyndaprófasannreynaNýyrði búið til úr ensku.
Meira um þetta: hvað er þýðingarbragur?
Ein lína og gervigreindin sér um afganginn
Settu Altalandi upp í Claude Code, Codex eða Cursor með einni línu. Eftir það flettir gervigreindin upp í kistunni sjálf og þýðir það sem vantar.
claude mcp add altalandi -s user -- npx -y altalandi-mcp@latest
ChatGPT, Claude Desktop og fleiri leiðir: uppsetning fyrir forritara.
1 kr fyrir hvert svar
- Þú greiðir aðeins fyrir það sem finnst. Það sem finnst ekki kostar ekkert.
- Ókeypis dagskammturinn þinn gildir fyrst, svo inneignin.
- Svarið kemur strax, því engin gervigreind þarf að skrifa það.
Úr eigin kóða
Allt að 200 textar í einu. Það sem finnst ekki geturðu sent áfram í þýðingu.
curl https://altalandi.is/api/v1/hnappasafn \
-H "Authorization: Bearer $ALTALANDI_KEY" \
-H "content-type: application/json" \
-d '{"strings": ["Save changes", "Germany", "Akureyri"]}'Í MCP heitir verkfærið lookup_icelandic_ui_strings. Lykla og tengingu finnurðu á Mínum síðum.
Spurt og svarað
- Af hverju ekki bara þýða?
- Þýðing gefur rétta íslensku, en kistan gefur það sem Íslendingar eru vanir að sjá: sama hnappinn alls staðar, rétta beygingu staðarnafns og rétta forsetningu, á eða í. Svarið kemur strax.
- Hvað kostar það?
- 1 kr fyrir hvert svar sem finnst. Það sem finnst ekki kostar ekkert, og ókeypis dagskammturinn þinn gildir fyrst. Hér á síðunni er leitin ókeypis.
- Get ég sótt alla kistuna?
- Nei. Kistan er notuð í gegnum Altalandi: þú flettir upp því sem verkið þitt þarf, allt að 200 í einu og 2.000 á dag. Leitin hér á síðunni er sýnishorn.
- Hvaðan koma svörin?
- Hnapparnir koma af íslenskum vefjum sem eru bæði á íslensku og ensku og úr íslenskum þýðingum opins hugbúnaðar. Heitin koma úr Unicode CLDR, Wikidata og frá Hagstofu Íslands, og beygingar staðarnafna úr BÍN. Þýðingarbragurinn er okkar eigin listi. Hverju svari fylgir hvaðan það kemur.
Allur listinn í einu
Tengdu Altalandi við Claude Code, Cursor, Codex eða ChatGPT. Gervigreindin flettir upp í kistunni og þýðir það sem vantar.
Tengja Altalandi